
Dýraspítalinn í Víðidal er einkarekinn spítali sem uppfyllir allar ítrustu kröfur sem gerðar eru nú til dags. Hér starfa sex dýralæknar sem hafa áratuga reynslu á ólíkum sviðum dýralækninga. Má þar nefna sérfræðing í hestasjúkdómum og fagdýralækna gæludýrasjúkdóma.
Móttaka gæludýra er alla virka daga milli kl. 8.00 og 18.00 og frá kl. 10.00 til 12.00 á laugardögum.
Móttaka hrossa er eftir tímapöntunum, en frá 1. janúar til 30. júní er einnig opinn stofutími virka daga milli kl. 16.00 og 18.00
Bakvakt vegna neyðartilfella utan opnunartíma í síma 860 2211
