Hugrún Lilja

Aðstoðarmaður

Hugrún útskrifaðist sem sjúkraliði frá Fjölbrautarskóla Suðurlands árið 2010 og hefur auk þess lokið tveimur árum í hjúkrunarfræði en stefnir nú á nám í dýrahjúkrun. Hún hefur starfað á Landspítalanum og á hjúkrunarheimilum en hóf störf í Víðidalnum vorið 2023.

Hugrún á tvo ketti, Hrafnaflóka og Tuma, Labrador tíkina Krummu og 5 hesta.
Hestamennska er aðaláhugamál hennar en auk þess elskar hún að prjóna og lesa góðar bækur.