Klaudia

Aðstoðarmaður

Klaudia er frá Póllandi og hefur búið á Íslandi síðan 2019. Hún lauk námi sem veterinary technician frá Technical and Veterinary School Complex í Trzciana í Póllandi árið 2018. Hún hefur einnig lokið námi sem dýrasnyrtir. Klaudia hefur unnið á Dýraspítalanum í Víðidal síðan 2020.

Klaudia aðstoðar dýralækna í daglegu starfi á spítalanum og er auk þess sérþjálfuð til að aðstoða á skurðstofu og í svæfingum. Hún sótti námskeið í svæfingarlækningum og verkjameðhöndlun í nóvermber 2023 og leggur nú stund á fjarnám í sjávarlíffræði frá Bircham International University í Madrid.

Klaudia á eina dóttur og helstu áhugamál eru tölvuleikir og myndlist.