Sigrún

Dýralæknir

Sigrún útskrifaðist sem dýralæknir árið 2022 frá Cardinal Herrera University á Spáni.
Eftir útskrift vann hún við afleysingar á landsbyggðinni og á öðrum dýraspítölum en hefur unnið í fullu starfi í Víðidalnum síðan í janúar 2023.

Sigrún vinnur mest með smádýr en hennar áhugasvið liggur helst í almennum smádýralækningum, neyðarþjónustu og tannlækningum.

Sigrún á Whippet tíkina Yöru og Cornish Rex köttinn Krumpa.
Áhugmálin eru helst ferðalög og svo góðar stundir með fjölskyldu og vinum.